þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir gott andsvar. Ég held að allir sem fylgdust með í aðdraganda kosninganna hafi gert sér fulla grein fyrir því að Samfylkingin ætlaði ekki að setja þetta mál á dagskrá á þessu kjörtímabili. Það kom algjörlega skýrt fram. Það kom líka skýrt fram hjá Flokki fólksins og hjá alla vega sumum þingmönnum Viðreisnar. Ég minnist þess að sá sem hér stendur var í Silfrinu einhvern tíma rétt fyrir kosningar þar sem þingmaður Viðreisnar var. Ég talaði um að það væri ekki ráðlegt að fara inn í brennandi hús þar sem bæði Þýskaland og Frakkland skulduðu gríðarlega fjármuni og að orkan í Evrópu væri ekki á góðum stað og margt annað. Þá sagði sá þingmaður Viðreisnar að ég ætti ekki að skilgreina þann flokk eins og ég var að gera og tala um Evrópuflokk, heldur væru þau eitthvað allt annað. Ég held að enginn flokkur hafi í raun ætlað að tala um þetta hér, en hér er smjörklípa á ferð.