þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Það er nefnilega þannig að þjóðin fékk afdráttarlaust svar frá núverandi hæstv. forsætisráðherra. Það merkilega var að það urðu ákveðin vatnaskil í þeirri kosningabaráttu; fylgi flokks hennar, Samfylkingarinnar, tók stökk. Það stórjókst í kjölfarið. Mig langar að spyrja hv. þm. Jón Pétur Zimsen hvernig beri að túlka svoleiðis viðbrögð hjá þjóðinni þegar það koma afdráttarlausar yfirlýsingar frá forystumönnum stjórnmálaflokka um afstöðu í einhverjum stærstu málum sem liggja fyrir þjóð hverju sinni og það gjörbreytir fylgisþróun; hvort sem það er niður eða upp þá verður einhver gjörbreyting á fylgisþróun við ákveðnar yfirlýsingar. Þess vegna ítreka ég fyrri spurningu mína af því ég tel nokkuð ljóst hvernig túlkunin verður, það er eiginlega ekki hægt að túlka það nema á einn veg: Samrýmist þetta því sem kjósendur Samfylkingarinnar gátu vænst?