157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[15:15]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni fyrir sitt seinna andsvar. Það er alveg ljóst að hæstv. forsætisráðherra sagði fyrir kosningar að Samfylkingin væri ekki á leiðinni inn í þetta ferli og að menn ættu ekki að plata. Hæstv. forsætisráðherra gerði annað; hann talaði opinskátt um innflytjendamál, að hér færu ekki saman opin landamæri og velferðarkerfi. Þessar tvær yfirlýsingar, þá fyrri sem hv. þm. Þorgrímur Sigmundsson nefnir og hina, sem voru örugglega umdeildar að einhverju leyti í baklandi ráðherrans, ollu því að fylgið virtist aukast a.m.k. Hvort sem það eru beinar afleiðingar þess þá lítur það þannig út. Ég vil meina, og þá sérstaklega með Evrópusambandið, að hér sé hreinlega verið að blekkja kjósendur.