157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[15:16]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir hreint ágæta ræðu. Þingmaðurinn kom inn á í sinni ræðu að upplýsingar varðandi málið væru æskilegar. Mig langar að fá álit og svar frá hv. þingmanni sem snýr að því hvernig hann lítur á þessa þingsályktunartillögu sem er hér til umfjöllunar varðandi þær upplýsingar sem liggja fyrir, þ.e. til kjósenda. Eru þær nægjanlegar eða ekki nægjanlegar? Sömuleiðis hefur hv. þingmaður verið að kynna sér, eins og kom fram í máli hans, að hann hefði verið að grúska á vefsíðum Evrópusambandsins og við höfum verið að ræða hér bæði í gær og í dag það sem snýr að forræði; varanlegt forræði og forræði yfir þeim auðlindum sem okkur er eiginlega heilagt. Fyrir okkur á Íslandi eru það auðlindir okkar. (Forseti hringir.) Hvað hefur hv. þingmaður séð sem snýr að varanlegu forræði eða forræði yfir auðlindum?