þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Örnu Láru Jónsdóttur fyrir ágætisandsvar. Fyrir það fyrsta talar þingmaður um að hún heyri mig segja eitthvað hér og að svo heyri hún eitthvað annars staðar. Allt sem ég talaði um hér er frá ESB. Mér þætti vænt um það þegar hv. þingmaður fer í ræðu seinna að hann tali þá um það sem hann heyrir annars staðar frá, því það er ekki nóg að segja að einn segi að jörðin sé flöt og annar segi að hún sé kúla. Ef þetta eru jafngild sjónarmið, er jörðin þá á ská? Fyrir þessu er ekki hægt að færa þau rök. Ég treysti þjóðinni fullkomlega en þjóðin þarf að vita það — ég vil kjósa um málið því að ég vil fá þetta mál út af borðinu þannig að hitt þingmál Viðreisnar sé þá bara farið og grundvöllur þess flokks sé í raun brostinn. Það sem ég vil almennt er að þjóðin fái að kjósa en að það sé þannig að þjóðin viti hvað hún er að kjósa. Og ég vil að hún viti það að ef hún tekur skref frá A til B þá sé næsta skref C.