þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Sá sem hér stendur er vissulega skjálfandi á beinunum en ekki af þeirri ástæðu sem hv. þingmaður gefur til kynna. Ég vil að allar upplýsingar liggi fyrir í aðdraganda þessarar þjóðaratkvæðagreiðslu. Mér finnst skemmtilegt þegar hv. þingmenn Sjálfstæðisflokksins skjóta á Samfylkinguna vegna þess að Verkamannaflokkurinn í Noregi felldi þessa tillögu Venstre í norska þinginu og væri kannski til í að spyrja hv. þingmann hvort hann hafi kannað hvernig Høyre, systurflokkur Sjálfstæðisflokksins, greiddi atkvæði. Það er mín fyrsta spurning.
Seinni spurningin er varðandi þessa tilvitnun í Mörtu Kos, stækkunarstjóra Evrópusambandsins, í viðtali við NRK. Ég vil spyrja hv. þingmann: Hefur hann lesið fréttina frá NRK eða hvaðan hefur hann sína þýðingu á þessari tilvitnun?