þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég ætla að gera mjög heiðarlega tilraun til að þýða hérna úr norsku yfir á íslensku. Það sem Marta Kos segir m.a. við NRK er: Við vitum að lönd eru með sérstaka hagsmuni og Evrópusambandið hefur sýnt það að þau geta samið um lausnir sem eru byggðar á tilliti og jafnrétti, á trausti og jafnrétti. Þetta er m.a. það sem Marta Kos segir á NRK, í þessu viðtali sem hv. þingmaður vitnaði í í ræðu sinni. En ég vildi einnig fá að spyrja hv. þingmann af því að það er alveg augljóst að hv. þingmaður er andsnúinn því að Ísland gangi í Evrópusambandið, og í raun hvað sem yrði samið um eða hvort sem samið yrði um eitthvað eða ekki. Ég mun aftur á móti segja já í þessari þjóðaratkvæðagreiðslu og ég trúi því að við getum landað góðum samningi. Ef ekki mun ég leggjast gegn aðild Íslands að Evrópusambandinu. Ég spyr hv. þingmann: Ef hann fengi að velja dagsetninguna sjálfur myndi hann þá greiða atkvæði með því að halda þessa þjóðaratkvæðagreiðslu? Ef hv. þingmaður fengi að velja dagsetninguna sjálfur myndi hann þá segja já við því að halda þessa þjóðaratkvæðagreiðslu í ár?