þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Svar mitt við spurningunni um þjóðaratkvæðagreiðslu og að seinka henni þannig að þingið sé að störfum yrði já. Ég vil halda þjóðaratkvæðagreiðslu um þetta, ég vil bara að upplýsingarnar komist til skila. Ég get upplýst hv. þingmann um að afi minn var norskur og ég skil norsku prýðisvel og hef lesið þetta viðtal við Mörtu Kos. Þar er hún að tala um það sem er hinn mikli ruglingur hér hjá stjórnarmeirihlutanum. Menn eru að tala um undanþágu fyrir einhvers konar sérlausnir, tímabundnar lausnir eins og Írar fengu að kenna á. Þeir voru með hlutfallskvóta í fiskveiðum sínum þegar stóru ríkin ákváðu, þegar það átti að skera niður kvóta, að Írar yrðu með í því. Þeir áttu ekki að vera með í því og þá var kvótinn skorinn niður hjá Írum. Það er ekkert sem heldur varðandi varanlegar lausnir, bara svo að það sé á hreinu, svo að þjóðin viti það. Við munum ekki geta fengið varanlegar lausnir. Við munum mögulega geta fengið undanþágu til einhverra ára en á endanum mun Evrópusambandið gleypa okkur. Fullveldi og sjálfstæði þjóðarinnar mun minnka og það er ekki eitthvað sem Sjálfstæðisflokkurinn stendur fyrir.