157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[15:32]
Horfa

Forseti (Bryndís Haraldsdóttir):

Forseti vill biðja hv. þm. Pawel Bartoszek afsökunar á því að hann hafi ekki komist að í andsvör. Það er vissulega rétt að hann gaf merki um það á undan öðrum hv. þingmönnum en það fórst fyrir hjá forseta að rita það niður. Þegar mikill áhugi er á að fara í andsvör vill forseti biðja þingmenn almennt um að vera mjög skýra og jafnvel koma upp að pontu til að vita hvort þeir hafi örugglega verið skráðir niður.