157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[15:43]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðu hennar sem fjallaði þó minnst um það sem er hér til umræðu. En gott og vel. Mig langaði að spyrja hv. þingmann út í staðhæfingu sem hann viðhefur í skrifum í Morgunblaðið, sýndist mér, á Facebook-síðu sinni og endurtók sumpart hér í umræðu fyrr í dag um störf þingsins þar sem hann staðhæfir að við höfum þegar tekið upp 75% af regluverki Evrópusambandsins. Samhliða því gagnrýnir hann umræðu um aukaatriði og í rauninni bara umgjörð umræðunnar. Mig langaði til að spyrja hv. þingmann: Hvaðan kemur þessi útreikningur hans sem hann ber á borð sem sannindi og staðreyndir? Mig langaði til þess að benda honum á í leiðinni og spyrja hann hvort hann hafi lesið þessa skýrslu utanríkisráðuneytisins, Gengið til góðs, frá árinu 2018 þar sem er einmitt fjallað ítarlega um það sem við höfum tekið upp í gegnum EES-samninginn og það sem við höfum ekki tekið upp í gegnum EES-samninginn. Það væri gaman að heyra frá hv. þingmanni hvaðan þessi vísindi koma.