157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[15:44]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka kærlega fyrir þetta andsvar. Þessi vísindi koma úr háskólanum, nánar tiltekið frá prófessor í Evrópurétti sem heitir Gunnar Þór Pétursson. Hann er í ítarlegu og góðu viðtali í hlaðvarpi sem heitir Meginlandið og er á vegum Evrópuhreyfingarinnar og fer þar yfir þetta. Niðurstaða hans er að Ísland hafi tekið upp 75% af regluverki Evrópusambandsins. Talan sem þingmaðurinn vísar til er tala sem er fengin þegar talin eru með öll bréf og svokallaðar gerðir; þegar einhver sendir erindi er því svarað með bréfi sem hefur þá í raun ígildi stjórnvaldsákvörðunar og þá er hægt að fá einhverja miklu lægri tölu. En þetta er talan fyrir lagasetningu og það sem skiptir máli varðandi Evrópusambandið, 75%. Þess vegna finnst mér svolítið bólgið að tala um að kljúfa þjóðina út af þessum 25% sem eftir eru, sem er hvað? Almennilegur gjaldmiðill, tollabandalag og varnar- og öryggismál.