þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Þvílík málefnafátækt. Hér kemur hv. þingmaður og útskýrir fyrir okkur að það sé bara einn einstaklingur sem er fremstur öllum og hann trúir honum eftir að hafa hlustað á hlaðvarp. Opinber gögn skipta engu máli. Annað: EES-samningurinn var samþykktur af Sjálfstæðisflokki og Alþýðuflokki. Alþýðubandalagið var á móti sem er nú burðarásinn og burðarstoðin í Samfylkingunni. Ef hv. þingmaður — ekki það, hann hefur einstakt lag á því að fara rangt með það sem gerst hefur í sögunni en það er ágætt að hafa það til hliðsjónar að þetta liggur fyrir. Alþýðubandalagið var stóri aðilinn þegar Samfylkingin var stofnuð, miklu stærri en Alþýðuflokkurinn. Þannig að hv. þingmaður þarf að tala við sitt heimafólk.
Síðan segir hv. þingmaður að við fáum skjól í ESB í varnarmálum. Er hv. þingmaður að grínast eða? Og tollarnir og tollabandalagið. Hvernig gekk ESB að semja við Trump um tollana? (Forseti hringir.) Af því að öll hans röksemdafærsla gengur út á hræðsluáróður (Forseti hringir.) út af Trump-stjórninni: Hefur hv. þingmaður engar áhyggjur af því að við séum varanlega að færa völd til Evrópusambandsins? (Forseti hringir.) Núna fer þar maður mikill, sem er Orban. Kannski verður einhver slíkur í forystu með þau völd yfir því sem við höfum völd núna? (Forseti hringir.) Hefur hv. þingmaður ekki áhyggjur af því?