157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[15:51]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mark Rutte, framkvæmdastjóri NATO, benti réttilega á að Evrópa gæti ekki varið sig sjálf. Evrópusambandsríkin eru með jafn mikið framlag til NATO eins og sameiginlegt framlag Tyrklands og Bretlands. Evrópusambandið mun ekki verja neinn. Þegar Evrópusambandið settist niður með Donald Trump, Usrula von der Leyen gerði það, og sagði: Heyrðu, nú hækkar þú ekki tolla á okkur, var niðurstaðan sú að Evrópusambandið gekk að öllum kröfum Bandaríkjanna. Að vera með þennan botnlausa hræðsluáróður til þess að koma þeim völdum sem við höfum yfir til Evrópusambandsins, og við munum aldrei fá þau aftur, er ekki sannfærandi málflutningur. Hann er reyndar stórhættulegur. Ef hv. þingmaður getur ekki komið með neitt annað en að hræða okkur hér vegna núverandi stjórnvalda í Bandaríkjunum þá sýnir það svart á hvítu, sem við öll vitum, að þetta er algerlega innihaldslaus málflutningur (Forseti hringir.) um að það sé gott fyrir okkur að ganga í ESB. Ég vek athygli á því, virðulegi forseti, (Forseti hringir.) að hv. þingmaður hefur á öllum tímum talað fyrir því ganga í Evrópusambandið, ekki bara þegar Trump er forseti, heldur alltaf. (Forseti hringir.) Það er alltaf tími til að færa völd frá Íslandi til Brussel.