þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir sína ræðu, mjög afhjúpandi og upplýsandi að mörgu leyti. Hv. þingmaður hélt því fram hér í ræðustól að stjórnarandstaðan vildi ekki þjóðaratkvæðagreiðslu. Það hefur enginn hér í stjórnarandstöðunni sagt það. En þetta er aðferðin, að búa til strámenn og ráðast á þá. Þetta er því miður lýsandi fyrir málflutning meiri hlutans. Það sem mig langar að spyrja hv. þingmann um er að nú hefur ekkert umsóknarríki fengið varanlegar undanþágur frá yfirstjórn ESB, ekkert. Hvernig ætlar hann með ríkisstjórninni að semja um eitthvað sem er ekki í boði þegar viðræður við Evrópusambandið fara í gang ef niðurstaðan verður já í lok ágúst?