157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[15:55]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka fyrir þetta andsvar. Það má kannski segja að við höfum náð einhverjum markmiðum í umræðunni ef það kemur hér fram afdráttarlaus yfirlýsing fyrir hönd allrar stjórnarandstöðunnar að hún styðji þjóðaratkvæðagreiðslu. Það er þá fróðleg yfirlýsing vegna þess að ég hef ekki skilið allar ræðurnar þannig. Þetta minnir mann kannski á krakkana sem maður bankaði upp á hjá í Árbænum í gamla daga og spurði hvort þau vildu koma út að leika og þau sögðu bara já, en bara ekki núna, ekki svona, og kannski á morgun. (GÞÞ: Vildi enginn leika við þig? Æ, æ. Þetta skýrir margt. )Þetta var nefnilega hluti af svörunum og eins og þið vitið var Árbærinn yndislegur staður að alast upp í og mikið af krökkum alls staðar en við vildum auðvitað hafa alla með því af því að við erum jafnaðarmenn. Það þarf ekki að hlæja að því. Það eru þau gildi sem við ættum öll að geta sameinast um í þessum sal.