þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Þetta var virkilega aumt svar við andsvari mínu og kom ekkert fram í því, akkúrat ekkert. Það hefur enginn stjórnarandstöðuþingmaður lýst því yfir að hann sé á móti þjóðaratkvæðagreiðslu, hvernig sem lesskilningur hv. þingmanns er, en ég spyr hann aftur: Um hvað ætlar hann að semja þegar ekkert umsóknarríki hefur fengið varanlegar undanþágur frá yfirstjórn ESB? Ekkert. Þetta er spurning sem liggur í loftinu og enginn stjórnarliði getur svarað eða hefur svarað en ekkert umsóknarríki hefur fengið varanlegar undanþágur. Nú erum við með allar auðlindir undir, framsal fullveldis og sjálfstæðis. Um hvað ætlar hv. þingmaður að semja þegar engu öðru ríki hefur tekist sem umsóknarríki að semja um nokkrar varanlegar undanþágur?