157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[15:58]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka fyrir þetta andsvar sem er eitthvað svo fallegt dæmi um nákvæmlega það sem ég var að lýsa í ræðu minni, að hér er verið að endurtaka ræður úr EES-umræðunni, mála dökkar myndir af því sem EES-samningurinn myndi hafa í för með sér og hvernig eigi að fá undanþágu frá hinu og þessu. Þetta hefur hins vegar í meginatriðum reynst gríðarlega vel og allur hræðsluáróðurinn reyndist meira eða minna nákvæmlega það: hræðsluáróður. (Gripið fram í.) Ég vil bara, eins og ég gerði í minni fyrri ræðu, benda á þau ágætu samningsmarkmið sem náðist saman um eftir breitt samráð í samfélaginu í síðustu viðræðulotu. Ég held að þau markmið séu bara góður grunnur fyrir næstu lotu. Ég myndi bæta við ETS-útfærslu vegna flugs sem samningsmarkmiði sem var ekki mikið rætt á sínum tíma vegna þess að það var ekki komið til (Forseti hringir.) en síðasta ríkisstjórn undirgekkst. Markmiðið í þingsályktunartillögunni í greinargerðinni (Forseti hringir.) er því eitthvað sem ég bendi þingmanninum á að lesa.