157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[16:02]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég var ekki viss hvort ég ætti að svara aftur því að hv. þingmaður sýndi í raun fram á það sem ég gerði athugasemdir við hér í fyrra andsvari mínu. Það eina sem hann hefur fram að færa sem viðbrögð eru meiri lygar, meiri lygar sem hann hefur frá einhverjum vinum sínum sem spunnu furðuþráð sem ekkert er hæft í. En það hentar hv. þm. Degi B. Eggertssyni. Því fjær sem eitthvað er raunveruleikanum og sannleikanum þeim mun fegnari er hann að sjá það. Svo hendir hann því aftur hér inn í þingið af einstakri ósvífni, einstakri. Hann talar um hluti eins og húsnæðismarkaðinn sem hann átti líklega stærstan þátt í að rústa hér og skildi Reykjavík eftir sem sviðna jörð í þeim efnum og á mörgum öðrum sviðum. Svo kemur hann hér fullur vandlætingar og heilagleika og ætlar að reyna að gaslýsa almenning á Íslandi og Alþingi Íslendinga. (Forseti hringir.) Ég bið ekkert um svar við annarri spurningu, það mun ekki berast af því að hv. þingmaður er staddur í öðrum heimi.