157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[16:06]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Nú eru auðvitað fullt af fordæmum fyrir því að forseti hafi gert athugasemdir við ræður þingmanna. Ef það eru ekki forsendur til að gera athugasemdir við það þegar hér er ráðist að öðrum þingmönnum fjarstöddum, því hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson var ekki í salnum þegar við fengum þessa óhróðursræðu í umræðum um þetta mál, þá veit ég ekki alveg hvenær er tilefni til þess að gera athugasemdir. En eitt er víst, virðulegur forseti, eftir þessa ræðu hv. þm. Dags B. Eggertssonar er enginn trúverðugleiki í málflutningi ríkisstjórnarliða þegar þeir segja að þeir vilji fá málefnalega umræðu um þessi mál. Það er enginn trúverðugleiki.