157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[16:09]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Ég er ein af þeim sem voru verulega hissa á ræðu hv. þm. Dags B. Eggertssonar, sérstaklega í ljósi skilaboða sem hann hefur ítrekað sent út frá sér í dag um það að hv. þingmenn ættu að koma sér upp úr skotgröfunum. En það er kannski ekki skrýtið þegar um vinstri mann er að ræða, það er auðvitað verið að ræða um alla aðra en mann sjálfan.