þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Hér í dag hafði átt sér stað ágæt umræða og málefnaleg langmestan partinn og sá sem flutti hér ræðu áðan, hv. þm. Dagur B. Eggertsson, hefur verið einn af þeim sem kallað hafa eftir málefnalegri umræðu. Svo mætir hv. þingmaður hér í pontu og ælir, ég ætla að leyfa mér að segja það, út úr sér óhróðri og drullu. Það var það sem þessi ræða var. Hún var ekkert um það sem við erum hér að fjalla um, ekki neitt. Og hafa nú þingmenn meiri hlutans stundum verið að kvarta yfir því að umræðan hafi teygst eitthvað aðeins frá því umræðuefni sem á nákvæmlega að vera hér til umfjöllunar. En þessi ræða sem hv. þingmaður flutti hér var honum til ævarandi skammar. Þetta var æla af óhróðri og ósannindum og hann heldur þessu áfram undir liðnum fundarstjórn forseta.
Forseti. Ég skora á forseta að taka þessa ræðu til skoðunar þannig að vel sé farið yfir það í hvaða samhengi hún er flutt; hún er flutt í kjölfar málefnalegra skoðanaskipta hér í salnum.