þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég verð að stíga hér upp í pontu og ræða einkennilega þróun í máli sem birtist fyrst í ræðu hv. þm. Dags B. Eggertssonar. Þegar menn reyna að bera blak af sjálfum sér, frú forseti, hér í ræðustól undir fundarstjórn forseta, þegar menn eru þvingaðir til að neita hlutum sem eru bornir upp á þá, þá forherðast hinir, þeir forherðast. Og svo er verið að tala um virðingu Alþingis. Þetta er með ólíkindum og ég hefði ekki trúað því að slík umræða færi fram í þessari pontu. Menn eru þvingaðir til að bera af sér sakir í pontu en þá forherðast hinir.
Frú forseti. Þetta gengur ekki.