157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[16:14]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Þetta er um margt áhugaverð umræða hér undir liðnum fundarstjórn forseta. Hér áttu sér stað skoðanaskipti um ræðu þingmanns þar sem farið var yfir tilvísun í fjölmiðil og þingmanni gefið tækifæri til að gera hreint fyrir sínum dyrum. Það tækifæri var ekki nýtt heldur var ausið úr skálum reiði sinnar yfir hv. þingmann sem gaf viðkomandi þingmanni einmitt tækifæri til að gera hreint fyrir sínum dyrum. Sá hv. þingmaður, hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, kom ítrekað í ræðustól og ásakaði utanríkisráðherra um að fara á bak við þjóð sína, og líka í sjónvarpsþætti í gær, og plotta með erlendum öflum. Þvílík ósvífni. En ég tók eftir muninum á þessu tvennu, þ.e. að hæstv. ráðherra kom einfaldlega og bar af sér sakir. Hann neitaði því að hann hefði verið í einhverju plotti með öðrum aðilum. Hér hef ég ekki heyrt neinn bera af sér sakir. Hér hef ég aðeins heyrt menn ausa úr skálum reiði sinnar út af þessu tækifæri til að gera hreint fyrir sínum dyrum sem þeim var gefinn kostur á hér. Það er áhugavert.