157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[16:17]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Lengi getur vont versnað. Eitt eru viðbrögð hv. þm. Dags B. Eggertssonar en svo kemur þingflokksformaður Samfylkingarinnar, sem ég verð nú að viðurkenna að ég hélt að ætlaði að koma hér og bera klæði á vopnin vegna þess að þetta er algerlega komið út í tóma þvælu. Það að koma hér, virðulegi forseti, og tala um það eins og eðlilegasta hlut í heimi og bera upp á þingmann saknæmt athæfi eins og það sé algjörlega sjálfsagt — og reyndar er þannig að fyrstu ásakanir eru bornar fram þegar hv. þingmaður er ekki í salnum eins og stundum gerist. Nú þarf hver að gera það upp við sig hvernig viðkomandi bregst við, bæði hv. þingmaður og sömuleiðis formaður þingflokks Samfylkingarinnar og stjórnarliðar og virðulegur forseti. (Forseti hringir.) Ég held að þurfi ekki að rökstyðja það að ef við höldum áfram með þessum hætti (Forseti hringir.) þá sér hver maður hvert það fer. (Forseti hringir.) Ég hvet virðulegan forseta til þess að setjast yfir þetta. Ef ekki nú, þá veit ég ekki hvenær.

(Forseti (EÁs): Forseti vill ítreka að ræðutíminn er ein mínúta undir þessum lið.)