þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Heilt yfir hefur þetta verið bara upplýsandi umræða hérna í dag og lengst af í gær líka. Ég verð að viðurkenna að ég var að vonast til þess að við myndum halda áfram að ræða innihaldið og ræða þjóðaratkvæðagreiðslu eins og ríkisstjórnin og þingið og margir þingmenn í þessari umræðu hafa sannarlega lofað. Það er ekkert nýtt að við heyrum eitthvað úti í samfélaginu og að það sé rætt hérna í pontu, svo það sé tekið fram. En það er stigsmunur á því, virðulegi forseti, og að væna einhvern um saknæmt athæfi. Það er alvarlegt mál. Ég hef aldrei orðið vitni að því hér á Alþingi áður. Ég held að það sé fullt tilefni til þess, virðulegi forseti, að við gerum bara hlé á umræðunni (Forseti hringir.) og förum gaumgæfilega yfir það hvað það þýðir. Ég tek undir með hv. þingmanni hér áðan, (Forseti hringir.) Guðlaugi Þór Þórðarsyni: Ef ekki núna, þá hvenær?