157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[16:20]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Það er einmitt það sem ég ætla að gera. Ég ætla að ræða fundarstjórn forseta. Ég held að ég lyfti ekki orðræðu hv. þingmanns sem hér á í hlut frekar en ég ætla hins vegar að spyrja hæstv. forseta hvort hún geti svarað því, og þingheimur fái við því svar hér og nú, hvort það standi til að bregðast við þessu ákalli sem er hér borið fram af fleirum en þeim sem hér stendur undir liðnum fundarstjórn forseta, og skoða hvort það hafi engar afleiðingar í þessari pontu að bera upp á menn sakir sem eru í raun og veru lögbrot ef væru sannar, sem þær eru reyndar ekki. Hefur þetta engar afleiðingar, frú forseti? Við hljótum að þurfa að fá svar við því og hugsanlega þarf að gera nokkurra mínútna hlé á þessum fundi til að fá það svar. En það svar verður að koma, frú forseti.