157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[16:22]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M):

Frú forseti. Jæja, þá er komið að Flokki fólksins að standa við sitt samkvæmt dílnum við myndun þessarar ríkisstjórnar sem vonandi fer frá sem fyrst. Raunheimatengingin virðist takmörkuð og forgangsmálin furðuleg; þingsályktunartillaga um bjölluat er komin á dagskrá Alþingis þar sem spyrja á þjóðina hvort hún vilji kíkja í ESB-pakkann. Já, ég endurtek: Kíkja í ESB-pakkann. Allt undirbúið og samstillt með embættismönnum í Brussel sem er fullkomlega augljóst þótt ýmsir hafi reynt að bera slíkt til baka. Það voru haldnir blaðamannafundir á svipuðum tíma og þegar framlagning tillögunnar var tilkynnt hér síðastliðinn föstudag. Það var haldinn blaðamannafundur í Reykjavík og það var haldinn blaðamannafundur í Brussel. Við skulum bara hafa það alveg á tæru.

Það var raunar átakanlegt að fylgjast með blaðamannafundi þríeykisins síðastliðinn föstudag þar sem formenn Viðreisnar og formaður Samfylkingar áttu erfitt með að stilla sig af í kátínunni yfir tillögunni sem við erum að ræða hérna í dag. Ekki skein sama gleði af formanni Flokks fólksins enda hefur sá flokkur, a.m.k. hingað til, verið á móti ESB-aðild en ætlar að styðja við bjölluatið; kaup kaups og prinsippin lítil. Síðan hefur það komið á daginn að hæstv. forsætisráðherra, formaður Samfylkingar, ætlar ekki að taka þátt í umræðunni. Hún var pínd til að koma hér upp nokkrum sinnum í gær undir öðrum dagskrárlið. Formaður Flokks fólksins er einnig fjarverandi og tekur ekki þátt í umræðunni þannig að ég verð bara að taka undir orð hv. þm. Snorra Mássonar frá því fyrr í dag og lýsa ákveðinni samúð með formanni Viðreisnar að þurfa að bera þetta allt uppi ein. En svona er þetta þegar æsingurinn er svo mikill við að komast í bjölluat.

Það er vaxandi órói í heimsmálum. Það geisar stríð í Mið-Austurlöndum. Það er stríð í Úkraínu og það eru vaxandi og alvarlegar blikur á lofti í efnahagsmálum hér heima á Íslandi. Þessir þrír stjórnarflokkar, Viðreisn, Samfylking og Flokkur fólksins, velja þessa tímasetningu þegar allur kraftur kerfisins, að mínu mati, á að fara í að koma efnahagsmálum á réttan kjöl, það þarf að ná niður vöxtum og verðbólgu og við þurfum að nýta alla okkar krafta hér innan lands, ekki í það að tvístra þjóðinni. En nei, þríeykið telur best fyrir Ísland á þessum tíma að tvístra þjóðinni þegar við þurfum á samstöðu og samheldni að halda. Hvers vegna? Hvers vegna á að tvístra þjóðinni núna? Er það út af frekjunni í einum tilteknum stjórnmálaflokki? Ég held að enginn frá þeim flokki sé hér inni í sal. Jú, ein. Ég er ekki að tala um Samfylkinguna, ég er að tala um Viðreisn. Maður veltir því fyrir sér hvort stefnan hjá þríeykinu sé að láta allt hér reka á reiðanum og láta fólk halda að ESB bjargi öllu. Gott fólk, það er ekki þannig að ESB bjargi öllu. Það bara er ekki þannig. Ég verð að segja að mér finnst ákveðins hræðsluáróðurs gæta í greinargerðinni með þingsályktunartillögunni, þar sem eru notuð orð eins og óstöðugleiki og óvissa og látið í veðri vaka að ESB veiti öryggi og skjól. Ekki láta blekkjast af frasapólitík þeirra sem svona tala og innilega innstæðulausum fullyrðingum, ekki láta blekkjast af þessu. Það er nú reyndar þannig að hæstv. utanríkisráðherra og formanni Viðreisnar hefur verið tíðrætt um skjólið í ESB. ESB veitir ekkert skjól, það hefur alla vega aldrei veitt Íslandi skjól. Því fyrr sem fólk áttar sig á því, því betra. Það er verið að tala um klúbbinn í Brussel sem á síðasta ári setti verndartolla á EES-ríkin, Ísland og Noreg. Það er verið að tala um klúbbinn í Brussel sem ásælist auðlindir Íslands, fiskimiðin okkar, orkuna og margt fleira. Ég minni á, vegna þess að það munu sennilega einhverjir koma hér upp og mótmæla þessu, að þetta er skjalfest í skýrslu ESB frá því í nóvember, þótt hæstv. utanríkisráðherra hafi ekki þóst muna eftir því á blaðamannafundinum á föstudag. Klúbburinn í Brussel segir í sömu skýrslu að hann hyggist, með leyfi forseta, „taka með virkum hætti þátt í því með ríkisstjórn Íslands að kynna kosti“ — að kynna kosti — „mögulegrar aðildar að ESB og vinna að auknum undirbúningi fyrir endurnýjað umsagnarferli ef Ísland virkjar með formlegum hætti umsókn sína.“ Bara að kynna kosti, ekki galla; mjög málefnalegt það, eða þannig.

Með leyfi forseta: Að taka með virkum hætti þátt í því með ríkisstjórn Íslands. Það er enginn fyrirvari gerður. Það er enginn fyrirvari settur í textann um mögulegan áhuga stjórnvalda. Hvers vegna skyldi það vera? Við hljótum að gera ráð fyrir því að hér hafi átt sér stað formleg samskipti milli embættismannakerfisins í Brussel og hæstv. utanríkisráðherra. Það getur ekki annað verið. Um þetta hef ég spurt formann Viðreisnar, hæstv. utanríkisráðherra, ítrekað hér á Alþingi og hún hefur ítrekað vikið sér undan því að svara nema oftast hefur hún reiðst svolítið því sannleikanum er fólk oft sárreiðast. Ég hef spurt hana um það hvort hún hyggist gera athugasemdir við slíka áætlaða íhlutun af hálfu ESB. Eins og ég sagði hérna áðan: Við þessu hefur verið brugðist með dylgjum og ítrekað verið vikið sér undan að svara. Þess vegna rak mig í rogastans að hlusta á blaðamannafundinn síðastliðinn föstudag þegar þessi þingsályktunartillaga var kynnt og blaðamaður á Morgunblaðinu spurði út í þetta og hæstv. utanríkisráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, og reyndar forsætisráðherra einnig, könnuðust ekki við fyrrnefnd áform ESB. Þetta er skjalfest í skýrslu. Af hverju er þessu ekki mótmælt? Af hverju kannast ráðamenn þjóðarinnar ekki við þetta? Lesa þeir ekki skýrslur ESB? Það er ítrekað búið að fjalla um þetta hér úr þessari pontu en því aldrei verið svarað þannig að þessi svör á blaðamannafundinum síðastliðinn föstudag eru beinlínis til þess fallin að slá ryki í augu fólks. Það er mín upplifun af þessum svörum vegna þess að þær vita betur. Evrópusambandið hefur í hyggju að hafa afskipti af umræðunni hér á landi í aðdraganda þjóðaratkvæðis og það í samstarfi við ríkisstjórnina, skjalfest pólitísk afskipti, þar sem einungis verður lögð áhersla á kosti að mati sambandsins, að Ísland verði hluti þess. Ég heyrði ráðherrann segja í viðtali að erlend íhlutun og afskipti verði ekki liðin og ef ráðherra væri staddur hérna í salnum myndi ég ganga á hana enn eina ferðina og spyrja hvort hún hyggist ekki gera opinberar athugasemdir við áform ESB um þessi afskipti. En hún er ekki stödd í salnum þannig að ég mun ekki fá svör við því í dag.

Það er lítill tími hérna. Klukkan líður mjög hratt þannig að ég ætla að sleppa hér ýmsu sem ég hefði viljað koma inn á. Ég ætla að halda áfram að tala um klúbbinn í Brussel og stækkunarstjóra þess sem hefur ítrekað sagt að sambandið bjóði engar varanlegar undanþágur frá laga- og regluverki þess. Ég ætla að minnast á fyrrverandi stækkunarstjóra, Stefán Füle, og það sem hann sagði á blaðamannafundi með Össuri Skarphéðinssyni, þáverandi utanríkisráðherra Íslands. Hann sagði að engar varanlegar undanþágur væru frá laga- og regluverki Evrópusambandsins. Nú hef ég heyrt ýmsa segja að hann sé farinn frá, hann sé hættur. Reglurnar hafa ekkert breyst. Það er staðfest að það eru sömu reglur. En það er rétt að Stefan Füle er hættur, það er það eina sem er rétt í því.

Fyrst ég á mjög lítinn tíma eftir langar mig að enda á þessu: Það þarf að upplýsa almenning um hvaða skilyrði af hálfu ESB gerðu það að verkum að ekki var unnt, í síðasta bjölluati, að opna kafla um brýn hagsmunamál á borð við sjávarútveg, landbúnað, dóms- og innanríkismál. Það er skylt að upplýsa almenning. (Forseti hringir.) Það er óboðlegt annað, kjósendur geta ekki tekið upplýsta afstöðu til aðlögunarviðræðna án þess að þessar upplýsingar liggi fyrir. Það væri mjög fínt ef stjórnarliðar (Forseti hringir.) í þessum sal gætu svarað þessu.

Ég verð að óska eftir því að verða sett aftur á mælendaskrá. Ég náði bara að komast yfir brot af því sem ég ætlaði að segja.