þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir gott svar. Í því samhengi sem snýr að þessari þingsályktunartillögu þá er hún í grunninn mjög einföld, þ.e. já eða nei. En þegar við lesum þingsályktunartillöguna held ég að við getum flest verið sammála um það að ef almenningur, ef kjósendur þessa lands eiga að taka upplýsta ákvörðun um það hvort þeir segi já eða nei, ég ætti alla vega fyrir mína parta, ef ég væri ekki búinn að kynna mér málin aðeins, verulega erfitt með það í ljósi þess hvað stendur í þingsályktunartillögunni. Getur hv. þingmaður tekið undir það með mér að þingsályktunartillagan sjálf sé óskýr? Jú, hún er einföld hvað það varðar að það er annaðhvort já eða nei, að halda áfram eða hætta eða taka hlé, það liggur ekki fyrir með nei-inu. En þarna þarf að gera mun betur og mín spurning er hvort hv. þingmaður geti tekið undir með mér hvað þetta varðar.