þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna og hennar umfjöllun hér. Mig langar til að eiga hér aðeins orðastað við hana vegna þess að mér gengur illa að skilja af hverju þessi tillaga er hér núna og ég velti því raunar fyrir mér af hverju hún er ekki annaðhvort fyrr fram komin eða borin upp í aðdraganda næstu kosninga. Ef við rifjum upp, frú forseti, — er þetta réttur tími sem ég hef?
(Forseti (EÁs): Já.)
Þá held ég að ég hætti nú öllu kjaftæði. Mig langar til að inna hv. þingmann eftir því hvort ráðherraskipan í þessari ríkisstjórn hafi mögulega einhver áhrif á niðurstöðu úr því hvernig unnið verði með þessi markmið (Forseti hringir.) sem stendur til að setja og hvort þingmaðurinn (Forseti hringir.) geti kannski aðeins varpað ljósi á það fyrir okkur hverjar hennar hugmyndir eru í þeim efnum.