157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[16:44]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Ingibjörgu Davíðsdóttur fyrir áhugaverða yfirferð yfir það hvernig þingmaðurinn sér ferlið fyrir sér. Ég tel mikið virði fólgið í því að reynslumikil manneskja á sviði utanríkisþjónustunnar gefi sig að umræðunni, deili þeim reynsluheimi sem hún hefur svo sannarlega hér fram að færa með þingheimi og ég er síðasta manneskjan til að gera lítið úr þeirri reynslu. Ég hins vegar heyri það að okkur greinir á um það hvort hér liggi stór tækifæri fyrir Ísland að fara út og gera miklar og metnaðarfullar kröfur í þeim málaflokkum sem sannarlega eru tilteknir hér í þingsályktunartillögunni.

Ég vil kannski spyrja tvíþættrar spurningar. Í fyrsta lagi: Sér hv. þingmaður enga kosti við þá leið sem hér er farin með því að leggja þetta í dóm þjóðarinnar í tveimur atrennum, hugsanlega aðeins einni, og leiða þetta álitamál, hugsanlega Evrópusambandsaðild, til lykta í eitt skipti fyrir öll? (Forseti hringir.) Mér gefst ekki tími til að fara í seinni spurningu og kem með hana í seinna andsvari.