þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Þessi þingsályktunartillaga er sögð hér vera einföld og óskýr. Spurningin: Viltu ganga í ESB eða ekki? er að sama skapi líka mjög einföld og óskýr. Það er fjöldinn allur af fólki sem hefur sterkar skoðanir á þessu máli í eina átt umfram aðra. En það eru enn fleiri sem eru opnir fyrir samtalinu, sem hafa trú á því að stjórnvöld fari út og geri ítarlegar kröfur, metnaðarfullar kröfur og að mati einhverra mögulega dónalegar kröfur til Evrópusambandsins. Það er að mínu mati eitthvað sem við verðum að virða. Ég ætla að fá að spyrja hv. þingmann í ljósi þess að hún talar hér um reynslu sína af EES-samstarfi … (IngD: ... utanríkisþjónustu.) — Af fundum á vegum utanríkisþjónustunnar sem varða EES-samstarf, og (Forseti hringir.) það að fólk taki ekki til máls af hálfu Evrópusambandsins. Getur mögulega verið að raunverulegar ákvarðanir fari fram í herbergjum sem við höfum ekki aðgang að?