þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Dagbjörtu Hákonardóttur fyrir seinna andsvar. Við erum bara greinilega mjög ósammála. Ég heyri ekki betur. Hún spyr sérstaklega út í það sem ég sagði hérna áðan varðandi fundi á vegum Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar þar sem koma talsmenn frá Brussel og mæla fyrir hönd aðildarríkja sem jú sitja við borðið. Sjálfsagt eiga sér stað einhverjir fundir, ég ætla ekki að útiloka það, en hins vegar á fundum þar sem allar þjóðir heims sitja, allar þjóðir heims, sitja EFTA-ríkin í hnapp, taka öll til máls hvert í sínu lagi en þar sem Evrópusambandsríkin sitja þar er talsmaður frá Brussel fremst, aðildarríkin sitja þar í hnapp og þegja allan tímann, taka aldrei til máls og þetta er ekki eina alþjóðastofnunin sem svona er ástatt um.