157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[16:50]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Hér er náttúrlega verið að slíta hlutina úr samhengi. Það sem ég var að vísa til hér áðan er skýrsla frá Evrópusambandinu frá því í nóvember þar sem kemur skýrt fram að það ásælist auðlindir Íslands, fiskimiðin okkar og orku okkar og það hvetur embættismenn til að beita sér fyrir því að Ísland, Grænland og Noregur verði aðilar að Evrópusambandinu. Það er það sem ég er að vísa til. Það er nákvæmlega það sem ég er að vísa til. Ég hef gert athugasemdir við það hér úr þessari pontu við ráðherrann sjálfan og hún hefur aldrei svo mikið sem brugðist við því með öðru en dylgjum, útúrsnúningum og æsingi. Hvort Evrópusambandið hafi tekið einhverjar auðlindir, ég hef ekki upplýsingar um það. En þetta er skjalfest í þessari skýrslu (Forseti hringir.) þessa klúbbs sem Viðreisn er svo ólm að ganga í.