157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[16:52]
Horfa

Valdimar Breiðfjörð Birgisson (V) (andsvar):

Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Svarið var sem sagt að hún veit ekkert um nein ríki eða dæmi þess að Evrópusambandið hafi tekið einhverjar auðlindir af þjóðum en ætli að gera það við Ísland. Það er þá væntanlega í fyrsta skiptið. En seinni spurningin væri kannski sú: Hvernig hyggst hv. þingmaður greiða atkvæði? Hyggst hún greiða atkvæði með þessari tillögu eða á móti henni? Ef þessi tillaga verður samþykkt, sem líklegt er, og það verði þjóðaratkvæðagreiðsla og út úr þeirri þjóðaratkvæðagreiðslu komi já, mun þingmaðurinn virða þá niðurstöðu þjóðarinnar?