157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[16:52]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvar. Áður en ég svara spurningunni þá gleymdi ég að koma inn á það áðan að þetta er ekki það eina sem ESB boðar, það sem ég nefndi hérna áðan, það boðar einnig pólitískan áróður í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar í samvinnu við ríkisstjórn Íslands. Þessu hefur utanríkisráðherra Viðreisnar ekki andmælt og þetta kemur fram í sömu skýrslu og ég vísaði til hér áðan og ég hef ítrekað tekið upp hér í þessari pontu. Varðandi það hvernig ég hyggst greiða atkvæði: Ég hyggst ekki greiða atkvæði með þessari tillögu, bara þannig að það sé sagt hreint og klárt. Mun ég virða niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslu? Gerum við það ekki öll? Er ekki leikurinn gerður til þess? Ég held að það sé ekkert annað í boði en að virða þá niðurstöðu.