157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[16:54]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F):

Frú forseti. Við ræðum hér tillögu til þingsályktunar um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Þingsályktunartillagan lætur svo sem ekki mikið yfir sér. Það er eiginlega já eða nei eða eins og það er í laginu: Nei eða já. Það er líka hægt að velta því þannig fyrir sér að hafa nei-ið á undan já-inu. Þegar þingsályktunartillagan er lesin og farið í að reyna að greina hana og sömuleiðis það sem snýr að samningsmarkmiðum — hver hefur þá orðræðan verið hér í gær og í dag? Þegar við höfum verið að velta fyrir okkur varanlegu forræði, undanþágum og öðru hefur alltaf verið talað um að Evrópusambandið hafi breyst svo rosalega mikið frá því við sóttum um 2009 og frá viðræðunum sem voru í gangi 2010–2013. Það hefur breyst svo rosalega mikið. Það hefur vissulega margt breyst og sömuleiðis hefur Ísland breyst. En þegar samningsmarkmiðin í þingsályktunartillögunni eru skoðuð þá eru það sömu samningsmarkmið og var verið að vinna með 2010–2013. Það er nú öll breytingin sem orðið hefur á þessum tíma, þ.e. samningsmarkmiðin eru þau sömu og þau voru hér fyrir 16 árum.

Ég átti hér í andsvörum í gær við hæstv. utanríkisráðherra. Þau sneru að auðlindum okkar, sjávarauðlindinni, fallvötnunum og jarðhitanum. Ég spurði: Er það virkilega þannig að við getum fengið undanþágu um að hafa fullt forræði yfir okkar auðlindum? Ég gat ekki betur skilið hæstv. utanríkisráðherra nema bara á þessu stutta svari: Jú, það er hægt. Það hefur þá sömuleiðis verið af því að það virðist hvort eð er ekkert hafa breyst síðan 2010. Það hefur verið vitnað hér oft í samtal sem þáverandi ráðherra, Össur Skarphéðinsson, átti við Füle nokkurn um að það væru engar varanlegar undanþágur í boði og sömuleiðis hefur það komið fram í skoðanaskiptum hér í þessum sal og úr ræðustól Alþingis. Það hefur svo margt breyst á þessum tíma en á föstudaginn síðasta, þegar umtalaður blaðamannafundur forsvarsmanna ríkisstjórnarinnar, forsætisráðherra, utanríkisráðherra og mennta- og barnamálaráðherra fór fram, var um kvöldið birt viðtal við konu sem heitir Heather Grabbe og þar eru engar undanþágur. Einu undanþágurnar sem talað er um fyrir aðildarríki eru svona sirka 5% af heildarpakkanum sem snýr fyrst og fremst að því hvort og hvenær við innleiðum ákveðna hluti sem þjóð. Þetta sagði sennilega hátt skrifaður einstaklingur innan Evrópusambandsins. Þar af leiðandi, fyrir þann sem hér stendur og ætlar að reyna að taka upplýsta ákvörðun um það hvað hann á að kjósa 29. ágúst, er mér lífsins ómögulegt að geta tekið upplýsta ákvörðun um það hvort þetta sé skynsamleg leið fyrir Ísland eða ekki vegna þess að það er óreiða í upplýsingunum sem við höfum og skilaboðunum. Það er bara sagt: Heyrðu, jú, við leysum þetta bara með því að halda áfram viðræðunum, þá sjáum við eitthvað frekar. Það liggur algerlega fyrir í þeim svörum sem embættismenn og háttsettir aðilar innan Evrópusambandsins hafa komið með að engar varanlegar undanþágur eru í boði þegar þú sækir um aðild. Þrátt fyrir að við séum sjálfstæð, sterk þjóð með gott sjálfsmat og ég veit ekki hvað, eyja hér norður í hafi með sérstakar aðstæður, þá finnst mér mjög ótrúlegt að við Íslendingar séum eitthvað öðruvísi en hinar 27 þjóðirnar sem aðild eiga að Evrópusambandinu. Það yrði verulega skökk staða fyrir þær þjóðir sem fyrir eru í Evrópusambandinu ef allt í einu kæmum við Íslendingar og við fengjum eitthvað allt annað heldur en allar hinar þjóðirnar hafa fengið. Í þessu samhengi er ég fyrst og fremst að horfa til þess að við höfum fullt forræði yfir auðlindum okkar vegna þess að við byggjum alla okkar velferð sem þjóð á því að nýta auðlindirnar. Það er grunnurinn að því velferðarkerfi og öllu sem við byggjum á. Það er sjávarútvegsauðlindin, orkan fyrst og fremst og síðan kemur landbúnaðurinn inn í. Ég ætlaði að spara mig í landbúnaðarumræðu í þessari fyrri umræðu og ætla fyrst og fremst að fara svona heildstætt yfir, því um leið og ég er kominn inn í landbúnaðinn þá hverf ég alveg hvað það varðar inn í þá umræðu þannig að ég ætla að geyma það til betri tíma.

Svo það sé alveg ljóst þá er það hins vegar þannig að við í Framsókn styðjum það að þjóðin fái að greiða atkvæði. Það liggur algerlega fyrir og hefur komið skýrt fram í ræðum hér og andsvörum og í útvarpsþáttum og spjallþáttum sem hafa verið hér á undanförnum vikum. Það liggur alveg fyrir. En það þarf að skýra út um hvað er verið að kjósa. Jú, við getum gert okkur grein fyrir því að jáið þýðir að við ætlum að halda áfram viðræðum. En hvað þýðir nei? Samkvæmt þessari þingsályktunartillögu er það þannig að nei, með leyfi forseta, þýðir að ekki eigi að halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Í mínum huga ætti nei-ið að vera þannig að við séum hætt aðildarviðræðum að Evrópusambandinu og að umsókn Íslands að Evrópusambandinu, sem var lögð fram 2009 í tíð Jóhönnu Sigurðardóttur, verði dregin til baka. Það verði ekki farið í þessar æfingar hér aftur bara næsta haust eða þarnæsta vor. Það þarf að vera skýrt, það er lykilatriði. Ég hvet hæstv. ríkisstjórn til þess að koma nú með góðar og gildar upplýsingar til almennings til þess að almenningur, þjóðin, geti tekið upplýsta ákvörðun um hvort það vilji halda áfram aðildarviðræðum að Evrópusambandinu eða ekki og að við ætlum að hætta þeim. Það er alveg ljóst að við í Framsókn styðjum þjóðaratkvæðagreiðslu en við höfnum aðild að Evrópusambandinu. Ég mun því segja nei í þjóðaratkvæðagreiðslu og það er hinn lýðræðislegi réttur. Það er lýðræðislegur réttur að geta sagt nei. Það er sömuleiðis lýðræðislegur réttur að geta sagt já. Við eigum að virða það og það á að virða vilja þjóðarinnar hvað þetta varðar. En það verður þá að vera þannig að upplýsingar liggi fyrir. Þessi þvæla sem hefur verið borin á borð lon og don um að það sé hægt að fá undanþágur frá öllu held ég að standist enga skoðun.