þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni fyrir afbragðsgóða ræðu. Ég tek undir með hv. þingmanni að það er erfitt að reyna að koma sjónarmiðum sínum fram hér á tíu mínútum og svo fimm mínútum í þessu risavaxna máli.
Hv. þingmaður talar um þjóðaratkvæðagreiðsluna og þá langar mig að spyrja hv. þingmann: Finnst honum ekki í fyrsta lagi að það þurfi að liggja fyrir hver skilyrðin eru? Hvaða skilyrði setjum við fyrir því að ganga í Evrópusambandið? Hver eru samningsmarkmið og skilyrði okkar Íslendinga? Þarf ekki að liggja fyrir hver áætlaður kostnaður er við að fara í þessar samningaviðræður? Seinustu samningaviðræður kostuðu á verðlagi þess tíma 900 milljónir, sem eru um 1,5 milljarðar í dag. Þarf ekki þjóðin að vita það ef hún er að fara í 1,5 til 2 milljarða kr. ferðalag? (Forseti hringir.) Þarf í öðru lagi ekki að liggja fyrir hver verður (Forseti hringir.) nettókostnaður Íslands af því að vera í Evrópusambandinu?