157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[17:06]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir góðar spurningar. Eins og ég kom inn á í minni ræðu er hér í þingsályktun fjallað um hina svokölluðu meginhagsmuni og samningsmarkmið í viðræðunum við Evrópusambandið. Það er alveg tilgreint en þetta eru sömu samningsmarkmiðin og vorið 2010–2013 og það þarf að skilgreina þau upp á nýtt. Það þarf að standa þar hvaða kröfur við gerum. Jú, vissulega væri gott að hafa kostnaðarmat á því hvað það kostar íslenska þjóð að fara í þessar viðræður og hvort það sé þess virði. Ég held að það myndi æra óstöðuga, hvað það varðar, að reyna að velta því fyrir sér hvort það sé þess virði. Það leysum við sem þjóð í atkvæðagreiðslu þegar (Forseti hringir.) að henni kemur.