157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[17:09]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir, enn og aftur, mjög góða spurningu. Það eru bæði kostir og gallar þess efnis að hafa lítinn gjaldmiðil. Aðalkostirnir eru þeir að við stjórnum því sjálf, við höfum ákveðna stýringu á því og ég tek undir með hv. þingmanni hvað það varðar að krónan er ekki sá blóraböggull fyrst og fremst sem snýr að því hver verðbólga er og þar fram eftir götunum. Það eru fyrst og fremst þeir sem halda utan um hagstjórnina hverju sinni sem stýra því. Vissulega eru það sömuleiðis utanaðkomandi áhrif sem þar hafa áhrif. En af því að hv. þingmaður velti þessu seinna andsvari fyrst og fremst fyrir sér, örstutt í restina, þá er það þannig með alla gjaldmiðla, hvort sem það er krónan eða evran eða dollar, að það eru yfirleitt alltaf þeir sem halda um efnahagsstjórnina hverju sinni sem stýra því hvernig útgjöld og tekjur fara fram.