157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[17:11]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Eins og svo sem hefur komið fram í umræðunni þá greinir okkur verulega á hvað það varðar hvaða tækifæri við sem þjóð höfum til samningsmarkmiða. En síðan erum við sömuleiðis með þessar fréttir og upplýsingar, að það sé hverju umsóknarríki gert að taka upp það regluverk sem fyrir er og það sem er umsemjanlegt er um það hvað við gerum það á skömmum eða löngum tíma. Það er tímalengdin fyrst og fremst.

Ég ætla ekki að nota það orð sem hv. þingmaður notaði hér áðan, hver væri að segja ósatt eða hvað. Ég held fyrst og fremst að þetta sé túlkunaratriði þeirra sem tala fyrir málinu. Kannski er verið að færa eitthvað í stílinn en fyrst og fremst er það held ég, nokkuð ljóst að ef þýðing á texta og þýðing þeirra sem tala er rétt (Forseti hringir.) þá held ég að það sé ómögulegt að misskilja hvað Evrópusambandið er að segja í þessu máli.