157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[17:13]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni fyrir svörin. Ég er hérna með þingsályktunartillöguna með mér uppi í pontu núna. Ef ég gríp hér aðeins niður í greinargerðina og það sem segir um meginhagsmuni og samningsmarkmið, þá kemur þar fram að það eigi að tryggja forræði þjóðarinnar yfir vatns- og orkuauðlindum og ráðstöfun þeirra og það eigi að tryggja forræði þjóðarinnar yfir fiskveiðiauðlindinni. Ég ætla bara að nefna þetta tvennt af því að tíminn er stuttur. Fyndist þingmanninum, ef hann er með tillöguna fyrir framan sig, ekki æskilegra að það stæði þarna að tryggja fullt forræði, ekki bara forræði? Það er munur á því í mínum huga, fullt forræði eða forræði.

Síðan er það seinni spurningin: Hvers vegna ættu Evrópusambandsríkin 27 að sætta sig við betri díl fyrir Ísland sem þau hafa ekki fengið sjálf? Myndi það ekki bara setja sambandið á hliðina í hvert einasta skipti sem nýtt aðildarríki kæmi þar inn?