þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni fyrir góða ræðu. Mig langar til að tala um samningsmarkmiðin af því að þú ræddir þau mikið í þinni ræðu, að þetta séu úrelt samningsmarkmið eða ekki rétt samningsmarkmið eða annað slíkt. Því langar mig til að spyrja þig út í hvað það er sem þú ert í raun og veru að tala um í því að við breytum þessum samningsmarkmiðum. Þegar maður skoðar þessi samningsmarkmið eru þau nú bara nokkuð þau sömu og um hefur verið rætt í núverandi umræðu, þannig að ég sé ekki alveg muninn. Varðandi landbúnaðinn, þar sem hv. þingmanni er málið skylt, er talað um, með leyfi forseta: „Að tryggja öflugan íslenskan landbúnað á grundvelli fæðuöryggis og matvælaöryggis.“ Mig langar til að spyrja þig: Hvernig ætti þetta að vera orðað öðruvísi? Ættum við kannski bara að sleppa því að orða það og fara inn í Evrópusambandið með þeim skilyrðum sem nú eru, sérstaklega miðað við það hve finnskir bændur virðast vera ánægðir með sína stöðu innan ESB?
(Forseti (EÁs): Forseti minnir hv. þingmenn á að beina orðum sínum til forseta og ávarpa þingmenn með fullu nafni eða kjördæmi.)