157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[17:22]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir þessa góðu ábendingu og góðu spurningu hérna vegna þess að það er akkúrat þetta sem við höfum verið að tala um og ræða hér í þessum sal, þ.e. upplýsingaóreiðu. Og akkúrat, þegar textinn er ekki rýndur sem snýr að meginhagsmunum og samningsmarkmiðum í viðræðunum við Evrópusambandið sem byggja fyrst og fremst á því hvað gekk á 2010–2013. Þeir sem tala fyrir málinu hér eru fyrst og fremst að tala um þessi samningsmarkmið þannig að það er ekki nema von að, held ég, stór hluti af þingheimi horfi á þetta sem hluta af þeim markmiðum sem á að leggja af stað með. Kærar þakkir, hv. þingmaður, fyrir að koma með þessa þörfu og sterku ábendingu vegna þess að þetta rammar svolítið vel inn akkúrat það (Forseti hringir.) sem við erum að eiga við, sem er upplýsingaróreiða, og það verður að laga áður en lengra er haldið.