157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[17:26]
Horfa

Ása Berglind Hjálmarsdóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Í gær hitti ég hóp af dönskum háskólanemum sem komu hingað til að ræða um umhverfismál. Svo heyrðu þau af því sem við vorum að fara að ræða um í gær, þessa þjóðaratkvæðagreiðslu og spurðu mig hverjir mér þættu vera kostir og gallar við það ef Ísland færi inn í Evrópusambandið. Þá rann upp fyrir mér að ég gat bara ekki með góðu móti svarað því vegna þess að við erum náttúrlega bara ekki með öll þau svör og það var það sem ég sagði þeim. En það sem hefur verið rætt um er varðar kosti er að við munum fá stöðugan gjaldmiðil, með stöðugum vöxtum og verðlagi, fulla aðild að innri markaði og þar með talið tollabandalaginu sem skiptir miklu máli í því alþjóðaumhverfi sem við lifum í í dag, aukna samkeppni sem leiðir af sér minni einokun, sem myndi þá leiða af sér mögulega lægra verð á hinum ýmsu hlutum, aukna erlenda fjárfestingu, stóraukna styrki til byggðamála og jafnvel samgöngumála og síðast en ekki síst sæti við borðið þar sem löggjöf ESB verður til og við erum nú þegar að stórum hluta að leiða í okkar lög.

Þessi umræða um Evrópusambandið hefur verið svona eins og bakgrunnshávaði öll mín fullorðinsár. Þetta hefur verið einhvern veginn stöðugt í umræðunni. Ég hef persónulega ekki sett mig vel inn í þetta þannig að ég finn mig alveg með þeim hluta þjóðarinnar sem bara virkilega vill fá þessar upplýsingar, svo ég geti gert mér mína eigin skoðun á þessu máli. Ég hef t.d. alveg áhyggjur af auðlindamálunum þannig að ég bara fagna því hversu harðir ráðherrarnir okkar eru þegar þeir segja að þarna verði ekki gefinn afsláttur og ég treysti því að svo verði.

Þessi umræða hér snýst í raun ekki um kosti og galla Evrópusambandsins því að það er umræða sem við getum tekið þegar við höfum allar þessar upplýsingar á borðinu, þ.e. ef þjóðin segir já í þjóðaratkvæðagreiðslunni sem við erum núna að leggja fram tillögu um, þá getum við raunverulega farið að taka þessa umræðu. Ég held að fólkið þarna úti vilji raunverulega fá það í hendurnar, í stað þess að hlusta hér á okkur reyna að sannfæra það um kosti og galla. Ég held að margir tengi við það. Maður vill bara fá að sjá samninginn áður en maður veit hver skoðun manns er. Eins og ég segi þá hefur þessi bakgrunnshávaði verið hluti af mínum fullorðinsárum og það var eiginlega ekki fyrr en í gær í umræðunni sem ég virkilega fattaði þetta: Já, heyrðu, við erum bara í alvöru að fara að gera þetta. Þjóðin er í alvöru að fara að fá að segja sína skoðun um það hvort hún vilji að við klárum þessar aðildarviðræður. En það er nú gaman að geta þess að í dag eru nákvæmlega 12 ár upp á dag síðan fyrri umræða um þingsályktunartillögu þáverandi ráðherra, Gunnars Braga Sveinssonar, fór fram, um að draga umsókn Íslands til baka. Það eru nákvæmlega 12 ár í dag. Þjóðin var ekki spurð þá. Tillagan fór ekki einu sinni í síðari umræðu. Þjóðin var ekki spurð þá. Við þurfum að klára að spyrja þjóðina hvort hún vilji að við klárum þetta mál, fáum fram samning og getum þá gert raunverulega upp hug okkar.

Ég fer víða um landið og hitti t.d. bændur. Það er máluð upp mikil hamfaraspá fyrir landbúnaðinn ef við göngum inn í Evrópusambandið. En ég hitti fleiri bændur en færri sem eru bara mjög spenntir fyrir því að fá að vita hvað raunverulega felst í því fyrir íslenskan landbúnað að fara inn í Evrópusambandið. Eins og þeir segja: Við þurfum að lúta reglum Evrópusambandsins en við fáum ekki sama aðgang að styrkjakerfi og framleiðendurnir að vörunum sem við erum að keppa við hérna í búðinni. Þær eru framleiddar með styrkjum frá Evrópusambandinu. Þeir eiga ekki séns, en kannski fá þeir séns ef við fáum aðgang að góðu styrkjaumhverfi, verandi hér á norðurhjara veraldar. Þetta eru upplýsingar sem ég vil fá. Ég hjó eftir því í viðtali við formann Bændasamtakanna að hann kallaði eftir því að þessi umræða færi upp á vitrænt plan. Hann setti sig ekki upp á móti þjóðaratkvæðagreiðslunni. (Gripið fram í.) Nei, þessi umræða hérna er bara alls ekki á vitrænu plani að mörgu leyti en sem betur fer ekki alfarið, hér hefur heilmikið verið sagt sem er á góðu plani. En við mættum vanda okkur betur.

Fólk sem flytur til Danmerkur, fólk sem flytur til Svíþjóðar og upplifir þar mikið velferðarumhverfi og skilur ekkert í því og langar varla að koma aftur heim þar sem hlutirnir kosta, grunnhlutir sem við þurfum að eiga eins og húsnæði — við þurfum að borga það þrisvar sinnum. Það er ekki staðreyndin í löndunum í kringum okkur, sem eiga hvað sameiginlegt? Jú, þau eru í Evrópusambandinu. Ég ætla ekki að segja það hér að það sé vegna þess að þau eru í Evrópusambandinu, þetta eru upplýsingar sem ég vil fá fram. Eins og hv. þm. Dagur B. Eggertsson kom inn á í sinni ræðu þá hefur það verið þannig, þegar aðildarviðræður hafa verið í gangi í löndunum í kringum okkur, að það hefur verið svona 50:50, hvort fólk hefur verið tilbúið til að fara inn í Evrópusambandið eða ekki. En í þessum löndum er 70–80% ánægja með að vera í Evrópusambandinu í dag. Þetta finnst mér segja okkur heilmikið, a.m.k. það að hér eigum við að fara í þessa þjóðaratkvæðagreiðslu, sammælast um það, og taka svo umræðuna þegar við sjáum samninginn. Við þurfum að fá að meta þessa kosti og galla. Við þurfum að gera það fyrir börnin okkar. Ég vil að börnin mín geti keypt sér húsnæði. Ég vil að þau geti verið á fúnkerandi leigumarkaði. Við skuldum framtíðarkynslóðum að taka þessa umræðu af einhverju viti.

Það hefur verið sagt hér að fyrrum ríkisstjórnarflokkar, Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur — það er til alveg ógrynni af ummælum sem hafa fallið hjá ráðherrum um að það eigi að klára þessa þjóðaratkvæðagreiðslu um það hvort fólk vilji halda áfram. Með leyfi forseta ætla ég að vitna í tvenn ummæli. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson sagði við undirritun á stjórnarsáttmála, þegar hann var spurður að því hvort það væri hægt að treysta því að þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhaldandi viðræður færi fram: „Að sjálfsögðu kemur að þjóðaratkvæðagreiðslu.“ Einnig sagði Hanna Birna Kristjánsdóttir sama ár: „Að sjálfsögðu mun Sjálfstæðisflokkurinn standa við það að þjóðin fær að ákveða það hvort gengið verði lengra í þessu máli. Það er þjóðarinnar en ekki einstakra stjórnmálamanna.“

Ég segi bara: Treystum þjóðinni. Fáum hana til þess að segja okkur hvort hún vilji að við höldum áfram, fáum fram samning og þá getum við farið að tala um þetta af einhverju viti.

Mig langar bara að kasta fram þeirri spurningu til þeirra sem eru hér að mála skrattann á vegginn í því samhengi að spyrja þjóðina þessarar spurningar: Eru einhverjar upplýsingar þarna úti sem þjóðin má ekki fá? Af hverju er þessi gríðarlega mótstaða við þetta?