þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Þessi ræða kom nokkuð á óvart, og þakka fyrir hana, vegna þess að það er stefna Samfylkingarinnar að ganga í Evrópusambandið. Hv. þingmaður vísaði hér til nokkurra hluta. Evrópusambandið er til. Það eru til margar bækur um það. Þetta er kennt í háskólanum og vanalega byrja menn að ræða kosti og galla áður en menn stíga einhver skref. Það er engin trygging fyrir stöðugleika að fara inn í Evrópusambandið eins og við sjáum í þeim ríkjum sem þar eru. Tollabandalagið, það er alveg niðurstaða úr því úr fyrri aðildarviðræðum að það myndi hækka verð á ýmsum vörum sem eru lægri núna því að tollar Íslendinga eru lægri en tollar Evrópusambandsins fyrir utan landbúnaðinn. Byggðastyrkirnir, við erum alltaf að borga meira með okkur og landbúnaðurinn okkar er mest styrktur í heimi, miklu meira heldur en í Evrópusambandinu.
Ég spyr hv. þingmann einfaldlega: Er ekki nær að hv. þingmenn kynni sér þessi mál sérstaklega ef það er stefna flokkanna þeirra? Hvernig má það vera að hv. þingmaður þekki ekki kosti og galla Evrópusambandsins því það er stefna Samfylkingarinnar að ganga inn í Evrópusambandið? (Forseti hringir.) Og sömuleiðis: Hefur hv. þingmaður engar áhyggjur af þeim völdum sem við færum til Brussel, að það verði erfitt að fá þau til baka ef þetta gengur ekki vel?