þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Rósu Guðbjartsdóttur fyrir andsvarið. Mér finnst þetta í raun vera mjög hreinlegt eins og þetta er núna. Það er bara einfaldlega spurt: Eigum við að halda áfram eða eigum við ekki að halda áfram? Þar með fáum við vilja þjóðarinnar fram um hvort við höldum áfram og förum í þessar samningaviðræður því það er jú, eins og hefur komið fram í umræðunni, heilmikil vinna að fara í samningaviðræður. Mér finnst þetta mjög góð nálgun. Það er mjög lýðræðislegt að spyrja fyrst: Eigum við að leggja af stað í samningaviðræður? Ef svarið er já þá gerum við það. Ef svarið er nei þá þarf ekki að ræða það meir. Svo þegar samningaviðræðum er lokið og samningurinn liggur fyrir þá er þjóðin aftur spurð. Mér finnst þetta mjög hreinlegt, klippt og skorið og skýrt. Ég vona að fólk átti sig á því þrátt fyrir alla þá óreiðu sem hefur verið uppi í dag og í gær.