157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[17:42]
Horfa

Ása Berglind Hjálmarsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sitt seinna andsvar. Já, þetta var náttúrlega bara mjög skýrt frá þeim degi sem ríkisstjórnin kynnti stjórnarsáttmálann. Þar kom mjög skýrt fram að þetta væri sú vegferð sem ríkisstjórnin ætlaði að fara í ekki seinna en árið 2027. Hér erum við að leggja til að greidd verði atkvæði um þetta 29. ágúst. Ég held að þetta sé bara algerlega samkvæmt margumtöluðu plani og mjög skýrt. Þó að Samfylkingin hafi haft ákveðna stefnu í kosningabaráttunni fer hún svo í það að búa til stjórn með öðrum flokkum og hv. þingmaður veit hvernig það getur verið þegar það eru fleiri en einn flokkur sem vinna saman, þá þarf að gera málamiðlanir. Þetta var alveg skýrt frá þeim degi sem ríkisstjórnin kynnti stjórnarsáttmálann og hér er bara verið að vinna samkvæmt honum.