þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Davíðsdóttur fyrir andsvarið. Ég held nú að samningaviðræður um svona mikilvæg málefni eins og þetta, hagsmuni heils lands, séu örlítið flóknari en svo að hægt sé að leysa þetta með einni bréfasendingu. Ég held að þetta þurfi allt aðs vera hluti af heildarsamningaviðræðunum. Ég sé þetta þannig fyrir mér án þess að hafa sett mig mjög vel inn í þann feril sem myndi taka við ef þjóðin segir já. En ég treysti því að það verði haldið vel utan um hagsmuni Íslands ef svo fer að þjóðin segi já, að þá verði vel haldið utan um þetta. Vonandi fáum við bara góðan samning sem mun mögulega breyta lífi margra á þessu landi.