þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanninum fyrir sína yfirferð. Þingmaðurinn vitnar talsvert í nokkurra mánaða gömul ummæli hæstv. forsætisráðherra, þar sem hún getur í raun ekki verið skýrari í afstöðu sinni til málsins; þetta væri mál sem væri ekki á dagskrá í nánustu framtíð. Þá langar mig að fá aðeins fram frá þingmanninum hvað hann telji að búi þarna að baki því að þetta mál sé að koma fram núna. Við vitum um andstöðu eins ríkisstjórnarflokksins í þessu máli. Forsætisráðherra, formaður Samfylkingarinnar, hefur verið á annarri vegferð og svo sannarlega í aðdraganda síðustu kosninga þar sem mátti sjá að fylgi við flokkinn snarjókst þegar slík afdráttarlaus yfirlýsing var gefin út um að þetta væri ekki brýnasta málið hjá þjóðinni. Mig langar því að fá fram frá þingmanninum hvað hann telji að búi þarna að baki akkúrat núna. Við vitum að það eru ærin verkefni hér heima við, vextir, verðbólga, atvinnuleysi og ýmislegt sem er að vaxa og verða okkur ofviða eða þeim sem ráða ríkjum. Getur verið að verið sé að drepa málum á dreif með því að setja þetta mál á dagskrá og láta umræðuna á næstu mánuðum snúast um það? Er verið að leita einhvers konar skjóls gegn því sem raunverulega þarf að taka á? Eða hvað telur þingmaðurinn að búi að baki því að koma með þetta akkúrat núna? Er þetta flótti frá hinum raunverulegu vandamálum sem við ættum að vera að takast á við?