þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Rósu Björk Guðbjartsdóttur kærlega fyrir þessar spurningar sem voru svona í og með vangaveltur líka. Ég ætla ekki að neita því að pólitískt útspil var það sem fyrst poppaði upp í kollinn á mér þegar ég sá mál sem er ekki einu sinni á þingmálaskrá, þótt það hafi vissulega verið í stjórnarsáttmála var það alls ekki á málaskrá þessa þings, skoppa hér inn á sviðið eins og skrautlegur skopparabolti sem ætlað væri að ná allri athyglinni. Ég ætla ekki að neita því að sá sem hér stendur leyfir sér að láta sér detta það í hug. Enda algjörlega ljóst, það er óumdeilt þrátt fyrir orð örfárra lobbíista sem hafa það hlutverk að halda öðru fram, að það voru þau kosningaloforð sem tryggðu Samfylkingunni ágætiskosningu. Eftir að hafa tekið Evrópumálin og sópað þeim undir teppi og hert svo verulega á innflytjendaumræðunni fór fylgið allt í einu í hæstu hæðir, eins og hv. þingmaður nefndi. Ég held að það sé óumdeilt að það er einhvers konar orsakasamhengi þarna á milli.
Varðandi það hvað býr að baki þá held ég að sviðsmyndin sé aðeins flóknari en þetta. Ég held að hæstv. forsætisráðherra standi líka í þeim sporum að vera annars vegar með Flokk fólksins, ég ætla bara að segja það, sem hefur kannski verið aðeins óstöðugur í umræðunni á þessu þingi, og hins vegar með Viðreisn sem hefur kyngt hverri skattahækkuninni á fætur annarri síðan þessi ríkisstjórn hóf sitt ferli hér. Ég held að þetta verkstjórahlutverk sem þau bjuggu til sjálf sé orðið mjög flókið fyrir hæstv. forsætisráðherra. Þetta heitir verkstjórn, og ég held að það hlutverk sé bara orðið mjög flókið.